Við bjóðum upp á gott úrval af umgjörðum t.d. frá eftirtöldum fyrirtækjum:
PORSCHE DESIGN
Vandaðar og flottar herraumgjarðir í sama klassa og bifreiðin.
Tree spectacles
Spennandi gleraugnaframleiðandi á Ítalíu. Umgjarðir gerðar úr japönsku títaníum, tré og plasti.
SILHOUETTE
Gleraugnasalan hefur verið umboðsaðili Silhouette umgjarða í tæp 50 ár
og er með gott úrval af Silhouette umgjörðum.
Silhouette hefur verið þekkt fyrir gæðagleraugu auk þess
sem Silhouette hannaði léttustu umgjörð í heimi, Titan minimal art –
eina umgjörðin sem farið hefur í geiminn.
SKYVINTAGE
Danskar umgjarðir sem eru mjög léttar, sterkar og svipmiklar.
Ramma retró stílinn mjög skemmtilega inn.
THOMSEN EYEWEAR
Enn eitt danska merkið sem við bjóðum uppá. Sitja létt þó að þær séu svipmiklar. Litríkar umgjarðir, margar tvílitar.
ØRGREEN
Dönsk hönnun sem slegið hefur í gegn Léttar og litskrúðugar titanumgjarðir handgerðar í Japan.
RODENSTOCK
Rodenstock er með gæðin í fyrirrúmi, framleiðir líka vönduð Sjóngler.
CARLOTTAS VILLAGE
Danskt par sem hannar þessar umgjarðir. Framleiða bæði títaníum og plast umgjarðir.